Árið 1881 var finnska fyrirtækið Iittala stofnað af Svíanum Petrus Magnus Abrahamsson en síðar var fyrirtækið keypt af A. Ahlström, eiganda Karhula glerverksmiðjunnar. Fyrst um sinn sérhæfði fyrirtækið sig í framleiðslu á efnafræðiflöskum og fleiru því tengt. Á árunum 1920-1930 urðu miklar breytingar og byrjaði fyrirtækið að framleiða listrænar glervörur. Í dag er Iittala heimsþekkt fyrir vandaða gler- og postulín vöru sem fyrirfinnst inn á heimilum um allan heim. Alvar Aalto, Oiva Toikka og Tapio Wirkkala eru aðeins brot af langri upptalningu heimsfræga hönnuða sem hafa unnið fyrir Iittala í gegnum árin.