Danska fyrirtækið Frandsen stofnaði Benny Frandsen í kjallaranum á heimili sínu árið 1968 eftir að hafa hannað og smíðað fyrsta Ball ljósið. Síðan þá hefur fyrirtækið stækkað og þróast ört og í dag vinnur Frandsen í samstarfi við hina ýmsu hönnuði og einblýnir á að skapa hágæða ljós og lampa fyrir einstaklinga og fyrirtæki víðs vegar um heiminn.
Ball línan inniheldur án efa vinsælustu ljós fyrirtækisins enda var fyrirtækið stofnað í kring um þessa klassísku og tímalausu hönnun. Loftljós í nokkrum stærðum, veggljós í tveimur útfærslum, gólf- og borðlampa má finna í Ball línunni í mörgum fallegum litum.
Borðlampinn er minimalísk hönnun sem sómar sér vel á náttborðinu eða á skrifstofunni. Lampinn veitir góða birtu sem hægt er að beina í allar áttir.
Framleiðandi: Frandsen
Ártal: 1968
Hönnuður: Benny Frandsen
Vörunúmer: 830-2456-0060111
Lagerstaða: Til á lager
Efniviður: Málmur
H: 130 cm