B&B Italia – Tobi-Ishi Borðstofuborð Cement Grout
Tobi-Ishi borðstofuborðið var hannað árið 2012 af Edward Barber & Jay Osgerby. Innblásturinn var fengin frá japönskum skrautsteinum. Það sem er svo einstakt við borðið eru fætur þess, en þeir virðast margbreytilegir eftir sjónarhorni.
Tobi-Ishi borðið fæst í tveimur stærðum (160×73,5 cm & 146x90x31 cm) og nokkrum litum. Toppurinn er úr MDF viðarpanel og fætur úr háþéttu polyurethane efni (Baydur©). Cement Grout borðið hefur svartan lit og töff áferð sem minnir á granít.
B&B Italia framleiðir hágæðahúsgögn sem seld eru um allann heim. B&B Italia hefur fjórum sinnum unnið til Golden Compasses verðlaunanna sem eru þekktustu hönnunarverðlaun Ítalíu og árið 1989 varð B&B fyrsta fyrirtækið til þess að hljóta þessi verðlaun fyrir heildarframleiðslu og hönnun.
B&B Italia – Tobi-Ishi Borðstofuborð Cement Grout Read More »