Danska fyrirtækið Frandsen stofnaði Benny Frandsen í kjallaranum á heimili sínu árið 1968 eftir að hafa hannað og smíðað fyrsta Ball ljósið. Síðan þá hefur fyrirtækið stækkað og þróast ört og í dag vinnur Frandsen í samstarfi við hina ýmsu hönnuði og einblýnir á að skapa hágæða ljós og lampa fyrir einstaklinga og fyrirtæki víðs vegar um heiminn.
Satellite er praktískur og nútímalegur borðlampi, tilvalinn á heimilið eða skrifstofuna. Dimmer er á lampanum og hægt er að halla og snúa höfðinu og stjórna þannig lýsingunni.
H: 40 cm, D: 47 cm, Ø: 7 cm