Karfa

Loading...

Kartell – Sparkle Hliðarborð Smoke

45.900 kr.

Vörulýsing

Ítalska fyrirtækið Kartell stofnuðu hjónin Anna Castelli Ferrieri og Guilio Castelli árið 1949 í Mílanó. Upprunalega ætluðu þau aðeins að framleiða aukahluti fyrir bíla og aðrar smávörur úr plasti en árið 1958 hóf fyrirtækið að framleiða ljósabúnað og síðar húsgögn. Árið 1988 gáfu þau fyrirtækið tengdasyni sínum, Claudio Luti, sem hafði bakgrunn í fatahönnun og tísku. Claudio hafði áður starfað hjá Versace og með ást á fullkomnun og smekklegri hönnun varð þetta nýtt upphaf Kartell. Hann leitaði eftir samstarfi við hönnuði og arkítekta, eins og Philippe Starck, Ferruccio Laviani, Patricia Urquiola o.fl., en þau hafa hannað vörur fyrir fyrirtækið sem í dag eru einkenni Kartell.

Sparkle hliðarborðið er verk japanska hönnuðarins Tokujin Yoshioka en hann er þekktur fyrir ástríðu sína á ljósi og prisma. Borðið minnir á ísklump eða kristal en það er búið til úr mótuðu akrýlgleri sem ljósið leikur skemmtilega við. Borðið er 35cm í þvermál og rúmar því snarl, drykk, bækur, lampa eða skrautmuni. Hægt er að taka toppinn af og nota borðið einnig sem hirslu fyrir t.d. teppi, púða, garn o.fl.

Ekki til á lager

Viltu fá tölvupóst þegar varan kemur aftur?

Vörunúmer: 255-08805/j1 Flokkar: , , , Vörumerki: Hönnuður: Tokujin YoshiokaEfniviður: PlastÁrtal: 2014

Vörulýsing

Ítalska fyrirtækið Kartell stofnuðu hjónin Anna Castelli Ferrieri og Guilio Castelli árið 1949 í Mílanó. Upprunalega ætluðu þau aðeins að framleiða aukahluti fyrir bíla og aðrar smávörur úr plasti en árið 1958 hóf fyrirtækið að framleiða ljósabúnað og síðar húsgögn. Árið 1988 gáfu þau fyrirtækið tengdasyni sínum, Claudio Luti, sem hafði bakgrunn í fatahönnun og tísku. Claudio hafði áður starfað hjá Versace og með ást á fullkomnun og smekklegri hönnun varð þetta nýtt upphaf Kartell. Hann leitaði eftir samstarfi við hönnuði og arkítekta, eins og Philippe Starck, Ferruccio Laviani, Patricia Urquiola o.fl., en þau hafa hannað vörur fyrir fyrirtækið sem í dag eru einkenni Kartell.

Sparkle hliðarborðið er verk japanska hönnuðarins Tokujin Yoshioka en hann er þekktur fyrir ástríðu sína á ljósi og prisma. Borðið minnir á ísklump eða kristal en það er búið til úr mótuðu akrýlgleri sem ljósið leikur skemmtilega við. Borðið er 35cm í þvermál og rúmar því snarl, drykk, bækur, lampa eða skrautmuni. Hægt er að taka toppinn af og nota borðið einnig sem hirslu fyrir t.d. teppi, púða, garn o.fl.

Stærðir

H: 35 cm
Ø: 45 cm
Þ: 4,05 kg

Tengdar vörur

Scroll to Top