Natuzzi – Wave Armstóll
Natuzzi er ítalskt hágæða húsgagnafyrirtæki sem sérhæfir sig í vönduðum sófum og er á heimsmælikvarða þegar kemur að hönnun og framleiðslu á þeim. Allir Natuzzi sófarnir eru hannaðir og framleiddir á Ítalíu undir ströngu gæðaeftirliti.
Wave línan er einn af þeim nýju frá Natuzzi Italia en hún var hönnuð af Nika Zupanc. Stílhreinn armstóll með sæti sem umhvefur þann sem situr í honum. Hægt er að fá armstólinn með stállituðum eða gylltum fótum. Einnig er hægt að fá tveggja eða þriggja sæta sófa í sama stíl. Hægt er að skoða mismunandi týpur af Wave nánar í meðfylgjandi Pdf-skjali.
Verð á Natuzzi sófunum getur verið nokkuð mismunandi út frá því hvaða áklæði er valið. Hægt er að velja annars vegar um leðuráklæði og hinsvegar tauáklæði. Þessar mismunandi týpur áklæða eru síðan í nokkrum gæðaflokkum. Hægt er að skoða mismun á verðum milli áklæðistegunda á hægri spássíu.
Natuzzi – Wave Armstóll Read More »