Karfa

Kay Bojesen – Kanína

Kay Bojesen fæddist árið 1886 í Kaupmannahöfn þar sem hann útskrifaðist sem silfursmiður árið 1910 eftir að hafa verið lærlingur Georg Jensen. Árið 1919 giftist Bojesen og eignaðist sitt fyrsta barn sem kveikti á löngun hans til að skapa viðarleikföng. Árið 1922 tók hann þátt í leikfangakeppni í Kaupmannahöfn þar sem hann setti inn fjögur leikföng: viðartrommu, viðarskip, reiðdreka og vegasalt – og vinnur verðlaun. Bojesen opnaði litla kjallaraverslun árið 1932 þar sem hann vann ásamt eiginkonu sinni næstu 26 árin og seldi þar leikföng sín, silfurmuni, viðarskálar, diska o.fl.

Í dag er Kay Bojesen álitið eitt stærsta hönnunarnafn Danmerkur og er hönnun hans er meðal þeirra vinsælustu þar í landi en síðan litla kjallaraverslun hans lokaði hafa margar af hans vörum ekki verið í framleiðslu. Eftir að Bojesen lést árið 1958 erfðu börnin hans og síðar barnabörn fyrirtækið sem í dag er innan Rosendahl Design Group. Rosendahl Design Group hóf aftur framleiðslu á nokkrum af hinum frábæru hönnunum Bojesen sem framleiddar eru á grundvelli upprunalegra teikninga hans og með virðingu fyrir stöngum skilyrðum sem hann hafði varðandi efni og vinnu.

Kanínuna hannaði Kay Bojesen árið 1957, ári fyrir dauða sinn, og er hún því ein af síðustu leikföngunum sem hann skapaði. Árið 2011 hófst framleiðsla á kanínunni á ný sem búin er til úr eik með hreyfanlegar hendur, fætur og höfuð. Stór og útstæð eyru kanínunnar gefa henni forvitnilegt og skemmtilegt útlit.

Kay Bojesen – Kanína Read More »

Kay Bojesen – Api Lítill Tekk

Kay Bojesen fæddist árið 1886 í Kaupmannahöfn þar sem hann útskrifaðist sem silfursmiður árið 1910 eftir að hafa verið lærlingur Georg Jensen. Árið 1919 gifti Bojesen sig og eignaðist sitt fyrsta barn sem kveikti á löngun hans til að skapa viðarleikföng. Árið 1922 tók Kay Bojesen þátt í leikfangakeppni í Kaupmannahöfn þar sem hann setti inn fjögur leikföng: viðartrommu, viðarskip, reiðdreka og vegasalt – og vinnur verðlaun. Bojesen opnaði litla kjallaraverslun árið 1932 þar sem hann vann ásamt eiginkonu sinni næstu 26 árin og seldi þar leikföng sín, silfurmuni, viðarskálar, diska o.fl.

Í dag er Kay Bojesen álitið eitt stærsta hönnunarnafn Danmerkur og er hönnun hans er meðal þeirra vinsælustu þar í landi en síðan litla kjallaraverslun hans lokaði hafa margar af hans vörum ekki verið í framleiðslu. Eftir að Bojesen lést árið 1958 erfðu börnin hans og síðar barnabörn fyrirtækið sem í dag er innan Rosendahl Design Group. Rosendahl Design Group hóf aftur framleiðslu á nokkrum af hinum frábæru hönnunum Bojesen sem framleiddar eru á grundvelli upprunalegra teikninga hans og með virðingu fyrir stöngum skilyrðum sem hann hafði varðandi efni og vinnu.

Apinn er vafalaust eitt vinsælasta verk Kay Bojesen en hann leit fyrst dagsins ljós árið 1951. Upprunalega var apinn hannaður sem snagi fyrir yfirhafnir barnanna en síðar varð hann heimsfræg hönnun sem prýðir í dag ótalmörg heimili um allan heim. Apinn er fáanlegur í nokkrum stærðum, allt frá 10cm í 46cm, en vinsælasta stærðin er sá litli, 20cm. Fyrst var 20cm apinn aðeins fáanlegur úr tekk en nýlega hófst framleiðsla á honum úr ljósri eik og reyktri eik.

Aparnir eru handgerðir í Danmörku og samanstanda þeir af 31 viðarhlutum. Þar sem notast er við gegnheilan, lifandi við getur hann verið mismunandi í lit og áferð sem gerir hvern og einn apa einstakan.

Kay Bojesen – Api Lítill Tekk Read More »

Rosendal – Grand Cru Skálasett 3stk

Erik Rosendahl stofnaði fyrirtækið árið 1984 sem umboðsskrifstofa fyrir iittala og átta árum síðar hóf Rosendahl framleiðslu á eigin vörum. Í dag eru alls níu fyrirtæki í Rosendahl Design Group, m.a. Kay Bojesen, Holmegaard, Kähler og að sjálfsögðu Rosendahl.

Árið 1993 hannaði gullsmiðurinn Erik Bagger stálvíntappan fyrir Rosendahl sem hlaut miklar vinsældir og í kjölfarið varð Grand Cru línan til. Það sem einkennir Grand Cru línuna eru rákirnar fjórar sem skornar eru í vörurnar og veitir þeim þannig fágað og tímalaust yfirbragð. Skálasettið inniheldur þrjár skálar í mismunandi stærðum.

Rosendal – Grand Cru Skálasett 3stk Read More »

Vörumerki

Vörumerki Angan er íslenskt, náttúrulegt húðvörumerki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu á hágæða húð- og baðvörum úr sjálfbærum, náttúrulegum og endurnýttum hráefnum úr íslenskri náttúru sem eru áhrifaríkar fyrir húðina. Þau handframleiða vörurnar með alúð til þess að tryggja virkni og gæði. ANGAN er með innihaldsefni sem róa ertingu, mýkja húðina, auka

Vörumerki Read More »

Scroll to Top