Flos – Glo Ball F1 Gólflampi H. 135 cm
149.000 kr.
Vörulýsing
Sérpöntun
Vörulýsing
Flos – einkar stílhreinn og sígildur gólflampi sem gefur dreifða lýsingu og myndar flotta stemningu í öllum rýmum. Ljóskúpan saman stendur af sýrugrófnu, munnblásnu ópalgleri og innra rými hennar er með gúmmíkenndum þráðum. Stálfóturinn fæst bæði grár eða svartmálaður með traustri stöng, auk stuðnings úr blásnu áli. Á snúrunni er rafmagnsdimmer sem gerir kleift að stilla birtustig ljóssins. Athugið að pera fylgjir ekki lampanum heldur þarf að versla aukalega.
Glo Ball línan frá Flos var hönnuð af listamanninum Jasper Morrison árið 1998. Við hönnun sína fékk hann innblástur frá fullu tungli.
Flos var stofnað árið 1962 í Merano á Ítalíu. Vörumerkið byrjaði sem rannsóknarstofa fyrir hönnuði og arkitekta, sem leituðust við að gera nýjungar í ljósaiðnaðinum. Á tímum þar sem LED var að verða nýr staðall, tókst FLOS að viðhalda stöðu sinni sem nýstárlegt og krefjandi lýsingarhönnunarmerki með því að nýta möguleika þessarar nýju tækni. Í Casa fæst glæsilegt úrval af lömpum og ljósum frá Flos og við hvetjum ykkur til að koma og skoða úrvalið.
Stærðir
H. 135 cm
Perustæði: 27cm
Fótur: 33 cm
Lengd snúru: 270 cm
Dimmanlegur: Já
Halogen pera, 26 W (E27)
Voltage: 220-240V
Frequency: 50/60 Hz







