Karfa

Umage – Champagne Gólfstandur

17.900 kr. 8.950 kr.

Vörulýsing

Þrátt fyrir að vera ungt fyrirtæki hefur Umage stækkað hratt og örugglega enda snjöll dönsk hönnun á góðu verði. Umage sameinar fagurfræði, einfaldleika og virkni í vörum sínum en það sem gerir ljósabúnaðinn alveg einstakan er að borð- og gólffætur, loftsnúrur og kúpur er allt selt í sitt hvoru lagi. Þannig má setja saman eigið ljós og einfalt er að breyta því ef smekkur breytist, án þess að þurfa að kaupa nýtt ljós. Að auki koma öll ljósin í flötum kössum sem svo er púslað saman þegar á áfangastað er náð, en þannig næst að spara óþarfa pakkningar og minnka umhverfisfótspor.

Til þess að úr verði gólflampi er nauðsynlegt að kaupa gólfstand en Champagne standurinn fæst svartur, hvítur og gylltur. Þessi einfaldi en stílhreini gólffótur var hannaður sem fáguð viðbót við heimilið og á hann passa allar kúpurnar frá Umage. Athugið að ljósin þola ekki beint sólarljós svo ekki skal hafa þau í eða við glugga.

Vörunúmer: 15-0403 Flokkar: , , Vörumerki: Hönnuður: Anders KlemEfniviður: ÁlÁrtal: 2018

Stærðir

H: 140 cm
Ø: 38 cm
E26 / E27 MAX 15W LED
Pera ekki innifalin

Tengdar vörur

Scroll to Top