Karfa

ANGAN Mix & Mask Ritual

14.890 kr.

Vörulýsing

ANGAN er íslenskt, náttúrulegt húðvörumerki stofnað af Írisi Laxdal. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á hágæða húð- og baðvörum úr sjálfbærum, náttúrulegum og endurnýttum hráefnum úr íslenskri náttúru. ANGAN byggir á rótgrónum íslenskum hefðum og eru vörurnar unnar úr íslenskum jurtum og berjum sem hafa öfluga virkni og skila sér í árangursíkum húðvörum sem næra bæði líkama og sál. Vörurnar eru 100% umhverfisvænar, vegan og “cruelty free”, auk þess að vera lausar við paraben, sílikon, phthalates, súlföt og önnur óæskileg aukaefni.

Maskasettið inniheldur andlitsmaskana Deep ocean og Black Lava ásamt mæliskeið og maskabursta. Deep Ocean maskinn er rakagefandi og mýkjandi andlitsmaski sem inniheldur náttúrulegan leir og villt íslensk sjávargrös. Sjávargrösin innihalda mikið af rakaefnum sem draga inn raka frá umhverfinu. Maskinn endurnærir og skilur húðina eftir hreina og endurnærða. Black Lava andlitsmaskinn er djúphreinsandi maski sem inniheldur virk kol, náttúrulegan leir, C vítamín, villtar íslenskar jurtir og eldfjallaösku. Andlitsmaskinn hreinsar svitaholur og óhreinindi, gefur létta yfirborðshreinsun sem losar um dauðar húðfrumur ásamt því að auka kollagenframleiðslu húðarinnar.

Blandið tveim skeiðum af vatni við tvær skeiðar af maska, blandið með maskaburstanum og berið á húðina. Þú getur einnig notað aðrar tegundir af vökva til þess að bæta í maskann. Prófaðu til dæmis hrátt hunang, lífræna jógúrt, blómavatn eða te infusion til þess að búa til þína einstöku blöndu.

Availability: Á lager

Casa Skeifan 8: Uppselt
Casa Glerártorgi: Uppselt
Hafnartorg Gallery: Á lager
Vefverslun: Á lager (Fá eintök)
Vörunúmer: 966-32 Flokkur: Vörumerki:

Vörulýsing

ANGAN er íslenskt, náttúrulegt húðvörumerki stofnað af Írisi Laxdal. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á hágæða húð- og baðvörum úr sjálfbærum, náttúrulegum og endurnýttum hráefnum úr íslenskri náttúru. ANGAN byggir á rótgrónum íslenskum hefðum og eru vörurnar unnar úr íslenskum jurtum og berjum sem hafa öfluga virkni og skila sér í árangursíkum húðvörum sem næra bæði líkama og sál. Vörurnar eru 100% umhverfisvænar, vegan og “cruelty free”, auk þess að vera lausar við paraben, sílikon, phthalates, súlföt og önnur óæskileg aukaefni.

Maskasettið inniheldur andlitsmaskana Deep ocean og Black Lava ásamt mæliskeið og maskabursta. Deep Ocean maskinn er rakagefandi og mýkjandi andlitsmaski sem inniheldur náttúrulegan leir og villt íslensk sjávargrös. Sjávargrösin innihalda mikið af rakaefnum sem draga inn raka frá umhverfinu. Maskinn endurnærir og skilur húðina eftir hreina og endurnærða. Black Lava andlitsmaskinn er djúphreinsandi maski sem inniheldur virk kol, náttúrulegan leir, C vítamín, villtar íslenskar jurtir og eldfjallaösku. Andlitsmaskinn hreinsar svitaholur og óhreinindi, gefur létta yfirborðshreinsun sem losar um dauðar húðfrumur ásamt því að auka kollagenframleiðslu húðarinnar.

Blandið tveim skeiðum af vatni við tvær skeiðar af maska, blandið með maskaburstanum og berið á húðina. Þú getur einnig notað aðrar tegundir af vökva til þess að bæta í maskann. Prófaðu til dæmis hrátt hunang, lífræna jógúrt, blómavatn eða te infusion til þess að búa til þína einstöku blöndu.

Stærðir

Deep Ocean Andlitsmaski: 30gr

Black Lava Andlitsmaski: 30gr

Tengdar vörur

Scroll to Top