Robert Welch opnaði sitt fyrsta stúdíó árið 1955 í Cotswold, Bretlandi, eftir að hafa yfirgefið the Royal College of Art og ekki leið á löngu þar til hann hafði öðlast orðspor fyrir yfirburði í bæði hönnun og framleiðslu á vörum úr ryðfríu stáli. Í dag stýra börn Robert Welch fyrirtækinu, enn í sömu byggingu og ævintýrið hófst fyrir yfir 60 árum, þar sem ástríða fyrir tímalausri og klassískri gæðahönnun er höfð í fyrirrúmi.
Drift línan er úr 18/10 stáli sem er fyrsta flokks ryðfrítt stál. Vínkælarnir úr Drift línunni og hafa tvöfaldan vegg sem hámarkar einangrun og töff útlit hans hefur landað honum verðlauna á borð við reddot hönnunarverðlaunana (2019). Minnsti vínkælirinn passar undir 1 vínflösku, miðstærðin passar undir 2 vínflöskur eða 1 stærri kampavínsflösku og stóri vínkælirinn passar undir 3 vínflöskur eða stærri 2 kampavínsflöskur. Línan inniheldur einnig stand undir tvo stærri vínkælana svo hægt sé að stilla þeim upp frístandandi á gólfi og svo stand sem er hægt að nota beint undir vínflöskuna á borði.