Occhio – Mito Largo Gólflampi
1.089.000 kr. – 1.199.000 kr.
Vörulýsing
Mito Sopeso ljósalínan frá þýska fyrirtækinu Occhio var hönnuð af Axel Meise og Christoph Kügler árið 2017 og hefur slegið í gegn á örskömmum tíma. Ástæðan fyrir vinsældunum er ekki bara þetta einstaka, stílhreina útlit, heldur tækni og virkni ljósanna frá Occhio. Hægt er að stjórna lýsingunni með handahreyfingum eða í símanum með hjálp Bluetooth. Litur birtunnar getur verið allt frá heitum tónum, í um 2700 Kelvin og yfir í kaldari tóna, um 4000 Kelvin sem er frábær vinnulýsing. Occhio lýsingin er nærri því að vera á sama birtustigi og dagsbirtan sjálf, um 95 á CRI skalanum en dagsbirtan úti er 100 á CRI skalanum. Birtustigið getur því haft mjög jákvæð áhrif á heilsu í mesta skammdeginu. Birtan frá Occhio Mito er ekki bara hágæða heldur dreifist hún líka svo ofboðslega fallega um rýmið. Hægt er að stilla lýsinguna upp á við eða niður, eða í báðar áttir. Höfuð Largo lampans er einnig stillanleg á þrjá vegu; í um 1,3 m, 1,45 m eða 1,6 m hæð frá gólfi. Við bendum á meðfylgjandi Pdf-skjal fyrir allar tæknilegar upplýsingar um Mito Largo lampann. Í Casa Skeifunni 8 er stórt sýningarrými Occhio þar sem hægt er að skoða ljósin og fá frekari upplýsingar um virkni og gæði.

Stærðir
Ø höfuð: 60 cm
H höfuðs: stillanleg
1,3 m / 1,45 m / 1,6 m
Ø fótur: 60 cm
L snúru: 2 m
Hægt að fela 1,5 m
Þ: 34 kg
Innbyggð LED lýsing
Innbyggður dimmer
Snertilaus stýring
Bluetooth stýring
230 V AC / 50 Hz
2700-4000 K
CRI 95
60 W